Terms of service

Skilmálar Storm Formulas

Síðast uppfært: 28. október 2026

Þessir skilmálar gilda um öll kaup í vefversluninni stormformulas.is. Með því að ganga frá pöntun samþykkir þú þá.


1. Seljandi

Storm Formulas ehf.
Kennitala: 610126-0810
VSK-númer: 160158
Heimilisfang: Lómasalir 16
Netfang: info@stormformulas.is


2. Vörur

Vörurnar okkar eru fæðubótarefni. Þær eru ekki ætlaðar einstaklingum yngri en 18 ára, barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti. Upplýsingar um innihald, skammta og notkun koma fram á síðunni og á umbúðunum. Kynntu þér þær áður en þú pantar.


3. Verð og greiðsla

Öll verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður, ef einhver er, kemur fram í greiðsluferlinu áður en þú greiðir.

Hægt er að greiða með greiðslukorti eða Apple Pay í gegnum greiðsluþjónustu Teya. Við sjáum aldrei kortanúmerið þitt.

Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta augljósar villur í verði og til að hætta við pöntun ef vara er uppseld. Ef það gerist látum við þig vita og endurgreiðum að fullu.


4. Pöntun

Þegar þú hefur gengið frá pöntun færðu staðfestingu í tölvupósti. Kaupsamningur kemst á þegar greiðsla hefur borist.


5. Afhending

Við sendum pantanir með Dropp. Pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum sendum við samdægurs, aðrar næsta virka dag. Nánari upplýsingar eru í sendingarstefnunni.

Áhættan af vörunni flyst til þín þegar þú tekur við henni.


6. Réttur til að falla frá kaupum

Þú getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá því að þú tekur við vörunni, án þess að gefa upp ástæðu. Vegna heilsuverndar og hreinlætis gildir þessi réttur ekki ef innsigli vörunnar hefur verið rofið eftir afhendingu. Nánari upplýsingar eru í skilastefnunni.


7. Gallaðar vörur

Ef vara er gölluð eða þú færð ranga vöru, hafðu samband á info@stormformulas.is sem fyrst. Við sendum þér nýja vöru eða endurgreiðum hana, þar með talinn sendingarkostnað. Um galla gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og kvörtunarfrestur er tvö ár frá afhendingu.


8. Persónuvernd

Við förum með persónuupplýsingar eins og fram kemur í persónuverndarstefnunni okkar.


9. Ágreiningur og lög

Um skilmála þessa gilda íslensk lög, þar á meðal lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og lög um neytendakaup nr. 48/2003. Ef upp kemur ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann með þér. Takist það ekki getur þú leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is).


10. Breytingar

Við getum breytt þessum skilmálum. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar pöntunin var gerð.