Shipping policy

Sendingarstefna Storm Formulas

Síðast uppfært: 28. október 2026

Við sendum allar pantanir innanlands með Dropp. Við sendum ekki til útlanda.


Hvenær sendum við?

- Pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum sendum við samdægurs.
- Aðrar pantanir sendum við næsta virka dag.


Hvenær færðu pöntunina?

- Á höfuðborgarsvæðinu er pöntunin tilbúin á afhendingarstað Dropp kl. 17 sama dag og við sendum hana.
- Utan höfuðborgarsvæðisins er hún tilbúin næsta virka dag eftir að við sendum hana.

Dropp lætur þig vita þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.


Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður, ef einhver er, kemur fram í greiðsluferlinu áður en þú greiðir.


Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ef pöntunin skilar sér ekki eða berst skemmd, hafðu samband á info@stormformulas.is og við leysum málið.